top of page

SÖNGLEIKJADEILD

STEPS-LOGO-svarturbakgrunnur1080.jpg
18021040508661963.jpg

Langar þig að syngja, leika og dansa á sviði?

Söngleikjadeild STEPS er fyrir 12 ára og eldri og þar færðu að kynnast heimi sviðslistanna í skapandi og skemmtilegu umhverfi þar sem sjálfstraust, gleði og tjáning fá að njóta sín.

Leikur, söngur & dans 

Æfingar eru 2x í viku

Nemendur vinna með:

  • Leiklist og persónusköpun

  • Söng, raddbeitingu og túlkun

  • Dans og sviðsframkomu

  • Tjáningu og örugga framkomu​

Áhersla er lögð á samvinnu, sköpun og að hver nemandi fái að finna sína eigin rödd og styrkleika.

Söngleikjadeildin hentar bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í sviðslistum og þeim sem vilja dýpka þekkingu sína og færni.

Kennarar söngleikjadeildar

Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir - Leikari, dansari, söngvari

Karen Jóhannsdóttir - Dansari

---------------------------------------------------

Viltu bæta við meiri dansi?

Nemendur geta bætt við sig danstímum sem styðja við sviðsframkomu og heildarupplifun í söngleikjum og sýningum.

Í boði:

  • Musical Theatre – 1x í viku
    Áhersla á dansstíl, sviðsframkomu og túlkun sem nýtist vel í söngleikjum
    Í boði eru tveir hópar:

    • MT dans 10–12 ára

    • MT dans 13 ára og eldri

  • Jazzballett (C hópar) – 2–3x í viku
    Grunnur í tækni, styrk og hreyfingum sem styðja við alla sviðsframkomu

Tímarnir eru opnir bæði fyrir nemendur í söngleikjadeildinni og nemendur í almennum danshópum sem vilja bæta við sig leik og söng og dýpka sviðsreynslu sína.

bottom of page