top of page

C hópar
7.-9. bekkur

Nemendur í C hópum skiptast niður í 3 hópa

C2 - 7. bekkur - æfa 2x á viku

C1 - 8.-9. bekkur - æfa 3x í viku

- Sjá stundaskrá

Í grunninn er kenndur jazzballet við fjölbreytta tónlist. Nemendur læra ýmsar útgáfur af hringjum, stökkum, flóknari dansæfingum og dönsum.

Unnið er með styrk og liðleika í gegnum fjölbreyttar hreyfiæfingar.

Nemendur í C hóp eru komnir með aldur til að tileinka sér fjölbreyttari dansstíla eins og Lyrical, Commercial eða Contemporary. 

Iðkendur læra sýningardans sem er sýndur á nemendasýningu Steps Dancecenter á stóra sviðinu í Hofi í lok annar.

Haustönn er september-desember

Vorönn er janúar-maí

DANSFERÐ

Dansferð til Reykjavíkur er í boði á haustönn þar sem nemendur úr C, D & Úrvalshópum gefst kostur á að fara. Skemmtileg ferð þar sem nemendur kynnast þvert á hópa, fara í 5-6 danstíma og halda æðislega kvöldvöku.

VALTÍMAR

Þeir sem vilja æfa oftar geta bætt við sig

Hip Hop, Musical Theatre og/eða Tækni & Trix tíma fyrir dansara. 

Einnig er í boði & Dansgrúv Pop Up tíma yfir önnina.

Klæðnaður í tíma
  • Þröngur æfingarfatnaður sem gott er að hreyfa sig í.

  • Dansað á tánum, sokkum eða í tásugrifflum.

  • Hár sett snyrtilega í teygju frá andliti.

  • Gott að hafa með sér vatnsbrúsa.

bottom of page